Hundrað Hafmeyjusporðar
Djúpt undir öldum hafsins býr hafmeyja nokkur sem á fleiri og glæsilegri sporða en nokkur önnur sjávarvera, sem hún heldur út af fyrir sig og deilir ekki með neinum. Allt það sem hafmeyjan áður þóttist vita breytist skyndilega þegar göldróttur kolkrabbi leggur fyrir hana þraut til þess að eignast fallegasta sporð sem sést hefur. Getur þú hjálpað hafmeyjunni að leysa þrautina?